Nú er allt að detta í gang aftur. Nú fer ég að blogga daglega, það var virkilega gott að fá smá frí frá því að skrifa á nánast hverjum degi í þrjú ár.
Athugasemdakerfi er komið á síðuna, ef þú einfaldlega klikkar á fréttina þá kemur það upp, það vantar enþá "Athugasemdir linkinn" fyrir neðan fréttina en það kemur inn í dag eða strax eftir helgi.
Sumarið er framundan og það styttist í fyrstu umferðina í Íslandsmótinu í Enduro sem fer fram fyrstu helgina í Maí, í nágrenni Reykjavíkur.

KTM er málið í dag, þeir eru að dóminera heimsmeistarakeppnina og planið er að taka yfir Ameríku á næstum tvem árum. Marvin Musquin heimsmeistarinn í MX2 flokki sem hefur unnið fyrstu 4 moto ársins hefur samið við KTM um að keppa næstu tvö ár í Ameríku, Stefan Everts mun stýra báðum liðum og er nú þegar farin að semja við allra hröðustu ökumenn í Ameríku varðandi næstu ár, ekki er hægt að segja frá því hverjir þeir að svo stöddu.
Hægt er að sjá viðtal við Stefan Everts hér: http://www.racerxonline.com/article/5-minutes-with-stefan-everts-2010.aspx

